
Auglýsir eftir töffara....
Viðkomandi verður að hafa undirritaða í sjómanni og vita hvað vínarpunktar eru.
Hvað mig vantar töffara er svo hinsvegar ekki til umræðu á netinu, enda myndu sennilega ekki margir bjóða sig fram ef þeir vissu hvað væri farið fram á.
Þeir sem vita ekki hvað töffari er, þá er það einstaklingur sem er ekki hræddur við eiginlega neitt - en afar meðvitaður um þá hluti sem skipta hann máli og líklegur til þess að verja það sem hann elskar með lífi sínu.
En þar sem Spúnkhildur er draumhugi og fantasíuvera má gera ráð fyrir að slíkt fólk hafi dáið út fljótlega uppúr síðustu aldamótum....

0 comments:
Post a Comment