Friday, November 4, 2011

Plögg dauðans




Loksins Loksins

Spúnkhildi hefur borist í hendur bókmenntaverk af fínni sortinni sem vert er að skrifa háfleyga orðskrúðsræðu utanum. Um er að ræða hið eilífa stórvirki Heima eftir Heiðu Skúla.

Spúnkhildur sér enga sérstaka ástæðu til þess að tíunda persónu höfundar hér, enda væri slík tíundun ekki bara tilgangslaus heldur hreinlega of geðveikisleg.

Það er ekki af ómerkari stað en Héraði, hinu sama og nefnt er í Hringadróttinssögu, sem höfundur á rætur sínar að rekja. Einmitt þar sem umhverfisvernd var fundin upp. Það er gaman að geta þess að Héraðsmenn eru einmitt frægastir fyrir að vera spakastir.

Margir kannast kannski við Borgarfjörð Eystri sem er þarna einhversstaðar fram og út, en þar er næstum annar hver maður snillingur líka. Og þar er stundum sauðfé á beit.

Aðrar ættir á höfundur að rekja vestsuðvestur og ber þess merki. Aðallega í framan en samt líka soltið á aðra kanta.

En hvaðan hinn einræni þokuhugur á rætur sínar helst að rekja verða lífefnafræðingar framtíðarinnar að skera úr um.


Spúnkhildur er ánægð með þróunina á þessum inngang. Hann minnir á Íslendingasögu. Eyrúnar sögu skáldmæltu. Hmmm....


Um kveðskapinn í bókinni er erfitt að dæma. Spúnkhildi sýnist vera þarna á ferðinni bók sem mun breyta framgangi lýðræðis í heiminum og koma á friði í miðausturlöndum, að því gefnu að hún verði kennd þar í skólum. Orðin eru tiltölulega fá og pappírinn ekkert sérstakur. Bókin er þannig séð mjög dýr ef manni vantar eitthvað til þess að stinga úr tönnunum með en nánast gefins ef maður miðar við verð á greiðsluseðli úr pappír. Þá er höfundur tugum prósenta undir meðalverði.


Bókin er mjög frumleg. Miðað við bók. Henni má líka breyta í hljóðbók með því að lesa hana upphátt. Hana má líka nota sem blævæng í miklum hita og gæti flokkast sem fyrsta skref í undirbúningi fyrir global warmig. Bókina má líka rappa eða syngja en ef menn ætla að túlka bókina í dansi vill höfundur koma þvi strax á framfæri að henni langar að verða vitni að slíkum gjörningi.


Jæja – hvort bókin er fullkomin snilld eða dónaleg frekja verður sá að dæma um sem kastar fyrsta steininum......


Spúnkhildur gefur Heima fimm stjörnur.


Án þess að skammast sín


X)



0 comments: