Tuesday, October 11, 2011

Misskilningur




Það varð misskilningur.
Einhver eða fleiri ákváðu að Markaðurinn væri hin nýja þjóðkirkja.
Og með þarfir Hans í huga var Honum sniðinn stakkur.

Það sem klikkaði var stærð Hans (enda vita allir að stærðin skiptir máli í þessu samhengi). Hann var ekki eins öflugur og sterkur eins og tilbiðjendur Hans hefðu viljað. Það klikkaði.

Af því íslendingar eru bara oggolítið pínkuponsu oggopons...

Röð mistaka, byggða á þessum sama misskilningi um hinn háheilaga Markað, hefur nú undið svo kyrfilega upp á sig að helst minnir á kíló af bendlaböndum nýkomna úr suðu og þurrkara. Kannski er best að ná í skærin, ég veit það ekki.

Ein af þessum epísku Markaðs-trúarbragða ákvörðunum var að einkavæða bankana.
Það ferli er þekkt. Handónýtt, siðspillt og meingallað. En er samt ekki aðalmálið.
Grundvallaratriðið er það að fólk á Íslandi getur ekki notfært sér tryggingakerfið nema að eiga bankareikning. Og þar af leiðandi er bankaþjónusta grunnþjónusta í þessu landi og ef ríkissjóður treystir sér ekki til þess að greiða út íslenskan gjaldmiðil í seðlum, neyðast þeir til þess að gefa ókeypis bankareikninga. Maður gæti notfært sér þjónustu glæpafélaganna með því að fá sér ókeypis sparisjóðsreikning, en þá fær maður skerta þjónustu hjá ríkinu og greitt út á eftir öðrum í tryggingakerfinu. Þannig þvingar ríkið fólk sem vill ekki vera í viðskiptum við glæpamenn til að styðja við hagnað bankanna.

Önnur af stærstu mistökum trúfélagsins Markaðurinn, var að einkavæða fjarskipti.
Það er svo vangefið að ég næ eiginlega ekki utanum það.
Fjarskipti eru það kerfi sem tryggir öryggi og þjónustu þeirra sem einhverra hluta vegna eiga ekki heimangengt eða þurfa á hjálp samfélagsins að halda. Ef almenningssamgöngur í þessu landi væru þannig að ALLIR íbúar gætu treyst því að geta keypt sér far á sanngjörnu verði þangað sem þjónustan er í boði - væru loksins forsendur fyrir því að einkavæða fjarskipti.
Svo er bara því miður ekki.

Hvers vegna réðist íslenska ríkið í það að fjarskiptavæða landið?

Við skulum hugsa aðeins um það á meðan að við gerum okkur grein fyrir stöðunni.

Menntakerfið, Heilbrigðiskerfið, Tryggingakerfið, Dómskerfið, Markaðurinn, Almannavarnir og fólkið í landinu er algerlega háð góðum fjarskiptum. Ég held að svona fáir einstaklingar hljóti að græða á því að eiga sjálft sitt eigið fjarskiptafyrirtæki.

Við skulum líka átta okkur á því að með því að skilgreina internetaðgang sem grunnþjónustu erum við fyrsta ríkið í heiminum sem getur tekið upp beint lýðræði.

Og það er áfangi sem allar sjálfstæðar þjóðir hljóta að keppast að.

Látum ekki mistök sem byggð eru á trúarhita og forsjárhyggju eyðileggja líf barnanna okkar í framtíðinni. Ekki aðeins er búið að stela af þeim arfinum sem þau voru réttborin til heldur eru þau læst inni í eilífri greiðslubyrgði sem er engum öðrum til gangs en örfáum spikfeitum peningamönnum.

Og helvíti bara...

0 comments: