
Eins og almennilegri norn sæmir, er Spúnkhildur afar berdreymin. Enda sefur hún klæðalítil.
Mest dreymir henni þó í vöku og tilfellið er nú svo heppilegt, að með einhverri meðvitund er bæði auðveldara að hafa áhrif á framgang draumsins og svo er umtalsvert líklegra að maður muni hann.
Hér að neðan fer lýsing á draumförum dagsins.........
(fyrir þá sem geyspuðu þegar þeir heyrðu orðið draumur og kjósa að sleppa alveg við útlistanir í þá veru)
Ég var stödd í Nettó í Mjódd og horfði yfir haf af jólabókum. Ég fór að skoða titlana og sá að þarna voru nú svona helstu samtímahöfundarnir með sitt efni (margir voru nú samt að gefa út númer tvö og þrjú í seríu) og fræðibækur sem allar fjölluðu um Markaðinn og Eyjafjallajökul. Séð og Heyrt lógóið var á öllum ævisögunum.
Ég rangla þarna um og les aftan á nokkrar bækur en kemst alls ekki í feitt fyrr en ég sé lítið borð með sjálfvirkum jólasveini að ulla framan í hreindýr.
Á stóru skilti á miðju borðinu stendur auglýsingaspjald með fimm vinsælustu titlunum:
Skitið upp á hnakka
Halldór Ásgrímsson fer mikinn í lýsingum sínum á ágæti íslenska hagkerfisins og hvernig honum tókst að sleppa frá illa innrættum kommúnistum í fjármálaeftirlitinu. Bókin er skrifuð í hinum hraða skandínavíska glæpasagnastíl sem nú tröllríður heiminum og á dögunum lýsti kvikmyndaleikstjórinn David Lynch yfir áhuga á að leikstýra mynd byggða á bókinni. Ég er upptekinn af hinum myrku skilum milli raunveruleika og firru sagði David um ástæður þess að hann sýndi verkefninu slíkan áhuga.
Hinir vandalausu
Falleg og einlæg bók Brynjars Níelssonar um þann hóp fólks sem hefur gleymst í íslensku samfélagi og sætir kynbundnu ofbeldi í fjölmiðlum. “Við verðum að snúa bökum saman og verja sameiginleg gildi okkar og menningarlega fegurð” sagði Brynjar í viðtali við Skjá einn þegar hagsmunasamtökin Íslenskir Hórkarlar voru stofnuð í Hörpu að viðstöddu fjölmenni. Þess má geta að Vigdís Finnbogadóttir er verndari samtakanna.
Afsakið hlé
Stórbrotin saga af miklum varnarsigrum íslenskra stjórnmálaflokka. Bókin inniheldur fleiri loforð, stærri áætlanir og færri útreikninga en áður hefur sést í íslenskri pólitík og er ætlað að gefa innsýn í hið flókna, listræna ferli sem felst í gerð stefnuskrár. Höfundar bregðast ekki lesendum sínum frekar en fyrri daginn. Svik, undirferli, mútur, glæpir, siðleysi og ofbeldi gegn minnimáttar eru meitluð í klámfengna glansmynd sem fólk skilur – bókin er bönnuð innan 18.
Falskar vonir
Bjarni Benediktsson lýsir á sinn sannfæradi, yfirvegaða hátt hvernig náttúran sé næsta bólan hérlendis. Hann sýnir fram á tilgangsleysi náttúruverndar á áhugaverðan og aðgengilegan hátt þannig að jafnvel þeir sem heyra með hjartanu skilja. Bókin er unnin í samstarfi við greiningardeildir Arion og Landsbanka og fékk AAA einkunn hjá Moodys. Menningarsjóður Morgunblaðsins veitti höfundi vegleg peningaverðlaun fyrir “bók ársins” í flokki málefnalegrar útgáfu sem er nýstofnaður verðlaunaflokkur.
Ég er líka fólk
Hugljúf og hrífandi saga Egils Einarssonar um baráttu sína við átröskun. Egill er lítill drengur sem verður snemma fórnarlamb óraunverulegra ímynda í Hollywood. Blindaður af þrá eftir hinum fullkomna líkama glatar Egill ekki bara ómældum tíma og erfiði heldur áttar hann sig á því dag einn að hann hefur glatað sjálfum sér. Ég hef ekki grátið eins hraustlega í mörg ár, sagði Kolbrún Bergþórsdóttir og snýtti sér í Egil Helgason. Egill er góður drengur, segir móðir hans um bókina.
Og þá vaknaði ég upp við vondan draum og varð að rjúka =)
Fyrir hverju er svona lagað?

0 comments:
Post a Comment