Tuesday, October 4, 2011

Dæmigerð viðbrögð fjöldans við því óþægilega




Nú er kreppa og Spúnkhildi er skemmt að vanda.

Það er að segja þangað til hún fæst til að horfa á fréttir - þá verður henni illt í sinninu og fjúkandi heilög reiði nær allri stjórn á henni.

Og Spúnkhildur klæddi sig í svarta ullarkápu og fór ómáluð í strigaskóm niður á Austurvöll og mótmælti. Harðlega. Og barði tunnu með barefli og beit saman tönnunum af einbeittri andstyggð á stjórnkerfinu í landinu.

Þá bar þar að mann nokkurn ölvaðan.

Hann taldi sér trú um að þessi tiltekna kona þyrfti á líkamsnuddi að halda þar sem hún stóð og barði tunnu. En hún var ekki tilkippileg og ýtti honum ákveðið frá sér.
En hann taldi það ósk um frekari ástarlot þannig að hún sýndi honum ógnandi tilburði með sérlega tiltæku mótmælisbarefli sínu. Og þegar hún náði augnsambandi við hann - rann af honum og hann forðaði sér. Vegna þess að þegar augun lýsa hatri og ósk um að fá að berja verðugt fórnarlamb löglega í fokking stöppu, er betra að forða sér.

En það kemur ekki í veg fyrir að sá næsti bjóði sjálfum sér að hlaðborðinu.

Og í augsýn hundruða mótmælenda var ekki NEINN sem sá neitt athugavert við hegðun mannsins eða bauð fram aðstoð sína?

Og sjónvarpsfólkið sem festi þetta á filmu sá heldur ekkert athugavert við þessa hegðun heldur.

Og lögreglan sá ekkert athugavert við þetta.

Vá hvað þetta er allt helsjúkt!

0 comments: